Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Einn góður!

hrunið

Afbrýðissemi

Ahoy,

Ég á vinkonu sem á tvö uppkomin börn. Dóttir hennar hefur verið með sama manninum í mörg ár, þau eru bæði mjög lagleg og eiga sætan lítinn strák. Þetta fólk er ofsalega duglegt, bæði útivinnandi, halda heimilinu vel til og eru dugleg að sinna stráknum sínum.

Sonur vinkonu minnar á vin sem býr í sama húsi og dóttirin. Hún sagði mér að þessi strákur talaði stundum um að dóttirin og maðurinn hennar færu svolítið í taugarnar á sér, því þegar hann væri að skríða fram úr rúminu sínu á morgnana og færi fram á stigagang mætti hann þeim ósjaldan nýkomnum úr hjólatúr eða einhverju öðru aktíviteti með stráknum sínum.

Ég skil ekki svona. Af hverju fer þetta í taugarnar á honum? Af hverju gleðst fólk ekki þegar það heyrir að það gengur vel hjá einhverjum? Af hverju er svona stutt í afbrýðissemina hjá fólki? Af hverju erum við aldrei ánægð með það sem við höfum og þurfum að öfundast út í aðra fyrir að gera hlutina öðruvísi eða hafa gengið betur? Ég segi fyrir mitt leyti að það gleður mig að vita að það sé til duglegt og gott fólk sem gengur vel. Það þýðir að enn er von fyrir okkur hin að hlutirnir smelli saman einn góðan veðurdaginn :-)

Hildur Sif


Ikea hækkaði rúmið mitt

Hæhæ,

Ég var fyrir miklum vonbrigðum þegar ég athugaði verðið á rúminu sem ég hafði valið mér fyrir viku í Ikea í gær, það hafði hækkað um 5 þúsund. Ekki nóg með að það hækkaði um 5 þúsund heldur hafði það hækkað eftir hækkunartörnina hjá þeim svo ég hélt ég væri alveg "on the save side". Nú er ég bara fúl og langar mest að sofa á jógadýnunum út árið. Veit samt ekki hvernig skrokkurinn á mér fer á því að gera það, smá spurning :-)

Hildur


Gætuð hafa séð einhverja útgáfu af því sama

Eitt hressilegasta og jafnframt klikkaðasta lag sem heyrst hefur á Youtube hér í nýrri útgáfu

 


Einn góður!

Fékk þennan í pósti í dag.

Hvernig kennir maður konu að spara?

......

.......

........

.........

..........

image001

 

 

 

 

 

 

 

 

image002  

 

 

 

 

 

 

 

  image003

Hildur Sif

 

 

 

 

 


Helgargangan

Hæhæ,

Þessa helgina varð Esjan fyrir valinu en ég ákvað (þrátt fyrir varúðarorð Sveins) að taka litlu trítlana með í ferðina. Það varð því miður til þess að Krílríkur fór að háskæla í svona 550 metra hæð eftir að hann hafði troðið snjó upp að höku í svona um hálftíma. Þeim var báðum troðið ofan í bakpoka en svo virtist vera sem það dugði ekki til því hann grét bara áfram greyið. Eftir það var ákveðið að ég færi með börnin niður ásamt Sveini sem er miskunnsami Samverji hópsinn. Þar að auki voru tveir Íranar sem voru illa búnir til ferðarinnar og þeir ákváðu að slást í förina. Hér eru myndir úr ferðinni en ég mun fara alla leið næst!

IMG_5055

Hér er ég í c.a. 500 metra hæð, jubb ég fer í bleik stígvél og tvennar buxur þegar ég geng á fjöll ;)

IMG_5047

Sveinn búinn að bjarga Apríl

Þetta var annars í fyrsta skiptið sem ég fór á Esjuna og það var mjög gaman þó hún væri svolítið snæviþakin!

Hildur Sif


Stjórnarfundur hjá Kaupþingi?


Einn fyrir okkur stelpurnar :-)

Maðurinn hafði fundið aðra - svo hún átti að flytja út.

Hún eyddi fyrsta deginum með að pakka öllu niður í kassa.

Næsta dag kom fluttningsbíllinn og sótti allt dótið.

Þriðja daginn settist hún við fallega borðstofuborðið í síðasta skipti, kveikti á kertum, setti góða músik á og borðaði stóran skammt af rækjum, rússneskum kavíar og drak flösku af Chardonnay.

Þegar hún hafði borðað, gekk hún hringinn í hvert einasta herbergi og tróð
rækjurestum inn í endana á öllum gardinustöngunum !

Þar á eftir gerði hún eldhúsið hreint og yfirgaf húsið.

Þegar maðurinn kom tilbaka í húsið með nýju kærustuna sína, voru fyrstu dagarnir
ekkert nema gleði og hamingja. En svo byrjaði húsið smám saman að lykta.

Þau prófuðu allt, ryksuguðu, þvoðu, loftuðu út.

Loftræstingin var skoðuð gaumgæfilega kanski voru þar dauðar mýsog rottur, teppin voru hreinsuð, og ilmpokum og loftfrískandi vörum var komið fyrir alls staðar.

Meindýravörnin var kölluð til og húsið var "gasað" gegn lyktinni, það þýddi, að þetta hamingjusama par þurfti að flytja út í nokkra daga.

Að lokum var allt veggfóður rifið af og húsið allt málað vel og vandlega.
Ekkert hjálpaði.

Vinirnir hættu að koma í heimsókn.

Iðnaðarmenn og aðrir starfskraftar gerðu allt til þess að þurfa ekki að vinna í húsinu.
Húshjálpin sagði upp.

Á þessum tímapunkti gátu þau ekki heldur haldið fnykinn út lengur, svo þau ákváðu að selja. Mánuði seinna hafði húsið ekki selst, þrátt fyrir að verðið hafi lækkað um helming.

Sagan gekk, og fasteignasalinn hætti að svara hringingum þeirra. Að lokum voru þau neydd til að taka stórt bankalán til að kaupa nýtt hús.

Fyrrverandi - eiginkonan hringdi til mannsins og spurði hvernig gengi.

Hann sagði henni söguna um rotna húsið.

Hún hlustaði með mikilli umhyggju og sagði svo að hún saknaði gamla heimilis síns ógurlega mikið, og hún gæti vel hugsað sér að kaupa húsið aftur.
Maðurinn var viss um að, ex-ið vissi ekkert um hve málið væri slæmt, svo hann samdi við konuna að selja henni húsið á tíunda-hluta af markaðsverði,  gegn því skilyrði að skrifað yrði undir samdægurs.

Hún samþykkti það.

Viku seinna stóðu maðurinn og kærastan í húsinu í síðasta sinn -
þau hlógu yfir sig hamingjusöm. Og þeim var létt þegar fluttningsbíllinn kom og sótti allt þeirra dót
til að keyra því yfir í nýja húsið.

- þar á meðal gardínustöngunum!!!!

Smekkleysa í boði Family Guy


Spillingin endar yfirleitt með ósköpum

Helgur maður var í viðræðum við Guð og sagði:

Guð, mig langar að vita hver munurinn er á himni og helvíti.

Við svo búið fór Guð með manninn að tvennum dyrum.

Hann opnaði aðra þeirra og hinn helgi maður leit inn.

Í miðju herbergisins var stórt hringlaga borð.
Á miðju borðsins var stór pottur með pottrétti sem ilmaði svo vel að hinn
helgi maður fékk vatn í munninn.

Fólkið sem sat við borðið var horað og veiklulegt.
Það leit út fyrir að vera að svelta í hel.

Fólkið hélt að skeiðum með löngu handfangi og hendur þeirra voru bundnar við
stólana en þó gátu þau veitt matinn upp úr pottinum með skeiðinni.

En þar sem handföngin á skeiðunum voru lengri en hendur þeirra þá gátu þau
ekki komið matnum úr skeiðinni upp í sig.


Hinn helgi maður varð undrandi á þeirri eymd og þjáningu sem við honum
blasti.

Guð sagði, 'Þú hefur nú séð inn í helvíti.'

Síðan fóru þeir að næstu hurð og opnuðu hana.

Við blasti sama sjón og í fyrra herberginu.

Stórt hringlaga borð með stórum potti fullum af pottrétti sem einnig
varð til þess að hinn heilagi maður fékk vatn í munninn.

Fólkið hafði sama búnað, þ.e. skeiðar með löngu handfangi. Munurinn var
hins vegar sá að þetta fólk var vel haldið, kátt,hresst og talaði saman.
Þetta sagðist hinn helgi maður ekki skilja.

Þetta er einfald, sagði Guð.
En þetta krefst eins hæfileika.

Eins og þú sérð þá hefur þetta fólk lært að mata hvert annað á meðan
að hinir gráðugu hugsa eingöngu um sjálfan sig.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband