Þú situr ekki hjá í svo mikilvægu máli.
17.7.2009 | 08:37
Mér finnst alveg í lagi ef Þorgerður Katrín hefði kosið með ESB ef það er hennar skoðun. Hún er ekki skuldbundin til að fylgja því sem Bjarni segir og á ekki að vera það. Hver og einn einstaklingur sem kosinn er inn á þing á að sitja á þingi fyrir þjóðina og kjósa eftir sinni bestu vitund en ekki vinna eftir klíkuskap og hópþrýstingi. Þetta snýst ekki um lið eða vinsældir þetta snýst um að vera heiðarlegur og samkvæmur sjálfum sér.
Að sitja hjá er hins vegar aumingjaskapur. Hún hefði átt að kjósa annað hvort eða.
Hildur Sif
|
Staða Þorgerðar Katrínar veikist |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
ESB
17.7.2009 | 08:34
Mér þykir ofsalega undarlegt að ráðamenn þjóðarinnar séu andvígir því að leyfa þjóðinni að kjósa um hvort ástæða sé til þess að fara í aðildaviðræður. 76,3% af þjóðinni vildu halda þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta mál en þeir ráðamenn sem sitja nú eru svo hrokafullir að þeim finnst þeir betur í stakk búnir til að taka þessa ákvörðun en þeir sem ákvörðunin snertir.
Ég skil ekki hvaða röfl þetta er um kostnað, það kostar okkur milljarð að fara í aðildaviðræður og ég get ekki ímyndað mér að þjóðaratkvæðagreiðsla kosti meira. Þetta er smá klink miðað við allt sem við komum til með að þurfa að borga og að framfylgja lýðræðinu er mikilvægara en einhverjir smáaurar.
Það sem mér fannst jafnframt leitt að sjá er að enginn í Samfylkingunni sat hjá eða kaus á móti aðildaviðræðum. Hinir flokkarnir sýndu þó vott af sjálfstæðri hugsun en samfylkingin virðist enn lifa í klíkuskap og spillingu. Mér þótti það afarleiðinlegt.
Þeir sem kusu á móti þjóðaratkvæðagreiðslunni mega skammast sín. Þjóðin kemur alltaf til með að vera besti dómarinn um sín mál og það á enginn að komast upp með að taka ákvörðunarréttinn frá henni þegar um svo stórar ákvarðanir er að ræða sem þessa.
Hildur Sif
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hún má nota stofuna mína sem aðstöðu og leggja undir sig stofuborðið.. no problemo
Ég er líka til í að leggja í púkk kaupa aðstöðu undir hana niðri í bæ.. ekki málið...
|
Eva Joly íhugar að hætta |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Why parents drink!
29.3.2009 | 20:25
A father passing by his son's bedroom was astonished to see that his bed was nicely made and everything was picked up. Then he saw an Envelope, propped up prominently on the pillow that was addressed to 'Dad.'
With the worst premonition he opened the envelope with trembling hands and read the letter.
Dear Dad:
It is with great regret and sorrow that I'm writing you. I had to elope with my new girlfriend because I wanted to avoid a scene with Mom and you.
I have been finding real passion with Stacy and she is so nice.
But I knew you would not approve of her because of all her piercing, tattoos, tight motorcycle clothes and the fact that she is much older than I am. But it' s not only the passion...Dad she's pregnant.
Stacy said that we will be very happy.
She owns a trailer in the woods and has a stack of firewood for the whole winter. We share a dream of having many more children.
Stacy has opened my eyes to the fact that marijuana doesn't really hurt anyone.
We'll be growing it for ourselves and trading it with the other people that live nearby for cocaine and ecstasy.
In the meantime we will pray that science will find a cure for AIDS so Stacy can get better. She deserves it.
Don't worry Dad. I'm 15 and I know how to take care of myself.
Someday I'm sure that we will be back to visit so that you can get to know your grandchildren.
Love, Your Son John
PS. Dad, none of the above is true. I'm over at Tommy's house. I Just wanted to remind you that there are worse things in life than a Report card That's in my center desk drawer.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Respect
26.2.2009 | 14:58
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fallin á tíma?
26.2.2009 | 14:55
Erum við fallin á tíma í sambandi við að Icesave málið verði sett fyrir dómstóla og þar með dæmt um hvort við þurfum almennt að borga brúsann?
Var einhver að stjórna þarna á Alþingi eða var jólaföndrið framlengt til 6. janúar?
|
Afdrifaríkasta nefnd ríkisins |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kjánalegt
26.2.2009 | 14:04
Mér finnst það til skammar fyrir sitjandi Ríkisstjórn að eyða orkunni í smámál eins og hvort Davíð situr í Seðlabankanum 2 mán lengur eða skemur í stað þess að berjast gegn sívaxandi atvinnuleysi og lánum sem sliga hverja fjölskylduna á fætur annarri. Þetta snýst um vinsældir og að reyna að snapa saman atkvæðum fyrir kosningar og mér líkar að ekki. Ég hélt þú værir hugsjónamanneskja Jóhanna, ég er ekki ánægð!
Hildur Sif
|
Seðlabankastjórar kvöddu starfsfólk |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Æfing til að koma í veg fyrir hrukkur!
24.2.2009 | 14:23
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott!
19.2.2009 | 09:23
Sæl öll,
Ég heyrði þetta orðatiltæki í félagsvist á þriðjudaginn og fannst ágætt að deila þessu með ykkur. Ég veit nú ekki hvaðan það er tekið en það stendur engu að síður fyrir sínu.
Stundum held ég að við verðum bara að vera bjartsýn og reyna umfram allt að standa saman sem ein heild en ekki margir ókunnugir einstaklingar á sama svæði. Við viljum öll það sama, hefði ég haldið, þ.e. að koma þjóðinni upp úr þessum "brotsjó". Set gæsalappir utan um sjómennskutilvísunina því þær eru komnar svo margar síðan kreppan skall á.
Hildur Sif
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er þetta nú skynsamlegt?
10.2.2009 | 10:27
Mér finnast einspilarar líkt og Davíð og greinilega Ólafur eiga að vera settir út af um leið og þeir brjóta af sér. Þetta eru óþörf og ógætileg orð sem koma frá vitlausum manni. Ef einhver á að gefa frá sér yfirlýsingar út á við þá er það hún Jóhanna, hinir eiga að haga sér og fylgja fyrirmælum ráðandi stjórnar. Átta mig ekki á þessari athyglissýki.. reyndu að halda aftur af þér Ólafur, í guðs bænum!
Hildur Sif
|
Þjóðverjar fái engar bætur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)

gudruntora
hallarut
must
rannveigh
skulablogg
thoragud
gudnim
zeriaph
gunnarwaage
cigar
veravakandi
helgihg
jonmagnusson
ksh
meistarinn
neddi
skattborgari
thee
villialli

